FAST hefur ekki enn gildandi kjarasamning við Háskólann í Reykjavík (HR). Stjórn félagsins vinnur nú að því verkefni að tryggja félagsmönnum kjarasamning.
Staðan núna
Stjórn FAST hefur unnið drög að kjarasamningi og er nú í viðræðum við Bandalag háskólamanna (BHM) og lögfræðinga þeirra um að móta endanlega útgáfu. Markmiðið er að tryggja félagsmönnum sanngjarnan kjarasamning sem tekur á launum, orlofsmálum, veikindarétti og öðrum starfskjörum.
Næstu skref
Þegar endanleg útgáfa kjarasamnings liggur fyrir verður hún kynnt félagsmönnum FAST og borin upp til atkvæðagreiðslu. Félagsmenn munu þannig fá tækifæri til að kynna sér efni samningsins og greiða atkvæði um hann áður en hann tekur gildi.
Hvert á að leita?
- Nánari upplýsingar um þau kjör sem kjaramál BHM má finna á vef BHM
- Félagsmenn geta leitað til stjórnar FAST með spurningar um kjaramál og stöðu samningaviðræðna
Félagsmönnum verður haldið upplýstum um framgang mála hér á vefnum og í tölvupósti.